|
|
19.06.2008 11:59:13 / hohe
jæja...enn og einu sinni hef ég látið langt líða milli færsla. Mamma Helgu og fjölskylda komu um daginn í viku, ekki var veðrið neitt til að hrópa húrra fyrir. Við gerðum samt eitthvað...vorum 2 daga í Osló komum svo hingað heim að grilla og svo um leið og Atli ætlaði að kveikja undir þá var skrúfað frá rigningu. Á mánudeginum þegar við vorum í Osló fékk ég símhringingu um að Afi minn úr föðurætt væri dáinn  svo á fimmtudeginum eftir það dó Afi hennar Helgu  góð vika? Fórum svo til Geiranger, rosa flottur staður en svolítið leiðinlegur vegur til að komast í og úr fyrðinum...til að komast uppúr honum þarf maður að keyra 1 km. upp og það sikksakk...var svolítið smeikur um að Jóhanna mundi gefa upp öndina við það því hún á það til að ofhitna þegar hún er að fara svona bratt upp og erfiða pínu en hún stóð sig einsog hetja og ég líka þar sem hún er ekki með vökvastýri og fullt af "U" beygjum upp þá var það ekki auðvelt...við Atli fórum að veiða þar og hann veiddi smokkfisk en ég veiddi þorsk og kolkrabba, vissi ekki að það væri hægt að veiða svona hef allavega aldrei séð svoleiðis. Við reyndum líka að veiða í ánni hér við skólann, en það kom enginn fiskur. Svo er ekki mikið búið að gerast síðan... 17. Júní kom á þriðjudaginn og við Helga skruppum pínu til Lillehammer og komum svo aftur til baka um kvöldið til að halda uppá þjóðhátíðardaginn...vorum með smá partý hér heima til að halda uppá það með einum öðrum Íslendingi sem er hér í skólanum ásamt 1 Norðmanni, 1 stelpu frá Sviss og 1 Skota...það var svosum fínt partý Aron (Íslendingurinn) kom með kassagítar og spilaði og söng nokkur leiðinleg lög, þannig að þetta var týpískt íslenskt kassagítarspartý þar sem einn kemur með kassagítar og spilar leiðinleg lög. Kvöldið (nóttin) endaði svo með því að Norðmaðurinn kveikti í íslenska fánanum mínum  ..að vísu ekki alvöru fáni, heldur sem ég bjó til úr A4 blaði og málaði í íslensku litunum..Ég tók það uppá vídjó og er að spá í að setja það á netið svo íslendingar viti hver hann er þegar hann kemur til Íslands. En já...ekkert meira að segja frá...ætla að skreppa til Svíþjóðar til Bjössa og co. á morgun og yfir helgina og svo kemur pabbi hennar Helgu strax eftir helgi BLESS P.S. svo fer ég allveg að koma heim...1. Júlí BLESS
»
06.06.2008 05:42:35 / hohe
jahérna ég held að þetta verði bara enn einn heitur dagur hérna í Noregi...það er varla búið að vera líft hérna. Í gær var um 34 stiga hiti, allveg frábært. Ég er allur í moskítóbitum og klæjar ekkert smá...þær koma örugglega inn um gluggann á nóttunni og ráðast þá á mig en ekki Helguég er meira að segja með 4 bit á annari rasskinninni . en jæjja...það er svosum ekkert meira að frétta héðan...Mamma hennar Helgu og famelía koma eftir helgi og svo á eftir þeim kemur pabbi hennar.....það kemur engin til mín  en já..fyrst ég hef ekkert meira að segja frá þá segji ég bara bless bless
»
01.06.2008 18:07:30 / hohe
Mér er heitt.
erum ekki búin að gera neitt voða mikið síðustu daga nema bara að vera að bráðna hér. Það var kveðjupartý á miðvikudagin var þar sem 2 af finnsku stelpunum fóru á föstudaginn strax eftir að þær voru búnar í síðasta prófinu.
Ég, Helga og 2 aðrar stelpur fórum á ströndina í gær það var ágætt nema hvað vatnið var allveg ískalt. Það er búið að vera allveg ógeðslega heitt núna síðustu daga...mér finnst ekki eðlilegt að svitna við að sitja á kamrinum. Það var svo annað partý í gærkveldi í húsi hérna stutt frá Evenstad, við fórum hjólandi þangað og það var allveg ágætla skemmtilegt...svo þegar við fórum heim tók ég ekki sama hjól og ég kom á, heldur eitthvað sem einn skoskur strákur hérna á, svo þegar við vorum að koma á Evenstad ákvað ég að hjóla hratt og ætlaði svo að skrensa í mölinni...þá voru bremsurnar öfugar við það sem ég hef vanist við heima þannig að ég flaug framfyrir mig og tók næstum olnbogan af mér...en þar sem ég var pínu í glasi fann ég ekki mikið fyrir þessu og hætti ekki að hlæja í smástund, ég hefði viljað sjá þetta.
En jæja ég held að ég geti ekki skrifað meira í bili...ég veit ekkert hvort ég hef náð að skrifa eitthvað þannig að meiki nokkurn sens, það er alltof heitt AAARRGGG
bless
»
21.05.2008 14:34:52 / hohe
Ekki þjóðhátíðardagur Íslands, heldur Noregs. Jább ég og Helga fórum til Osló um helgina og það var þjóðhátíðardagur á laugardaginn 17. maí og jesús kristur hvað það var mikið af fólki og mikill hávaði, það voru nánast allir með einhverskonar þokulúðra eða flautur og þetta hætti ekki. Sáum semsagt nokkrar skrúðgöngur og sáum kóngafólkið veifa frá höllinni sinni. Byrjuðum samt Osló ferðina á að fara útá lífið á föstudagskveldið og það er ekkert frítt að djamma hér í Noregi...Andreas vinur okkar tók okkur á fínan rokkstað. Svo eftir að það var lokað fórum við að fá okkur að eta...og ekki er það frítt heldur, við fórum á BurgerKing sem ég hélt að væri svona nokkuð ódýr staður en neinei fyrir 2 hamborgara með frönskum og gosi borguðum við að mig minni rétt um 4 þús. kr. Tókum svo leigubíl heim og hann var eitthvað dýrari. Svo á Laugardeginum vorum við bara að labba um alla Osló fórum í einhvern voða fínan garð og eitthvað meira sem Helga vildi skoða sem ég veit ekkert um fórum svo bara heim til Andreas láum fyrir framan sjónvarpið fram eftir nóttu...ég fór einu sinni út með hundinn hanns út að labba um nóttina þar sem hann var úti að skemmta sér. Svo var Sunnudagurinn voða svipaður...bara labbað og skoðað einhverja garða, tókum svo næturrútuna heim og ætlunin var að sofa í henni en það var víst ekki hægt þar sem blámaðurinn sem var fyrir aftan okkur hraut og gaf frá sér allskonar óhugnaleg hljóð og ekki var andfýlan skárri sem kom alltaf aftan að manni, ég held að hún sé notuð í efnavopn, gassprengjur eða táragas eða eitthvað álíka.
Svo vorum við útlendingarnir að föndra fána í gær svo við hefðum einhverja fána til að veifa á Evróvisjón. Horfðum á þetta í gærkveldi og ég verð að segja að þetta voru ekki góð lög... kannski bara einsog alltaf, en við munum að sjálfsögðu mæta annaðkvöld með íslenska fánan til að styðja homman.
Ég nenni ekki að vera að búa til myndasíðu...en þið sem hafið áhuga að skoða myndir frá okkur í Noregi þá bendi ég fólki á að fara á síðuna hennar Helgu. Það er linkur á hana hérna vinstra meginn á síðunni minni undir "aðrir bloggarar" og ef þið prófið að ýta á "Helgan mín" farið þið sjálfkrafa á hennar síðu og þar vinstra megin á hennar síðu ætti að vera Linkur sem heitir "Myndir!" og ef þið prófið að ýta á "Myndir" ætti að koma upp myndasíða. Þar sem við erum með sömu myndavélina finnst mér óþarfi að vera að setja upp aðra myndasíðu með nákvæmlega sömu myndunum...og svo bara nenni ég því ekki.
en jæja...held að þetta sé að verða fínt...er að spá í að leggjast í þunglyndi eða eitthvað.
bless
»
15.05.2008 18:43:04 / hohe
Jæja...ég held að það sé komin tími á nýtt blogg.
Var með afmælisveislu á sunnudagskveldið, það var drukkið það kvöldið og nóttina, ekki var mikið um afmælisgjafir nema púsluspil, kexkökur og einn bjór...ég sá að enginn hafði beðið mig um bankanúmer til að geta lagt inná mig milljón.
Kreditkortavesesnið er loksins búið held ég...þeir sáu loksins að ég hafði ekki verið að nota kortið í svíðþjóð á þessum tíma, og ég held að þetta hafi ekki verið Bjössi þar sem hann er ekki komin í fangelsi, alltsaman gott mál.
Jóhanna (bíllinn) gengur ennþá, þó svo hún hafi verið straumlaus á þriðjudaginn..en það var bara útaf því að ég held að ég hafi ekki slökkt á útvarpinu í henni. Ég semsagt var að reyna að hlusta eitthvað á útvarpið í henni og okkur kom ekki vel saman og ég var svolítið harðhentur við það þannig að ljósið slokknaði á því og hljóðið dó, þannig að ég hélt að það væri bara dautt á því og lét það bara eiga sig....en það saug sennilega bara allt rafmagn úr Jóhönnu.
Það er komið gat á einhverja vatnslögnina sem liggur hingað til Evenstad og allt vatn er gult, svo nú þarf maður að kaupa sér vatn til að geta drukkið það og það er ekki ódýrt frekar en nokkuð annað hér í Noregi...og maður er heldur ekkert voða spenntur að fara í sturtu í svona vatni, svolítið einsog að fara í bað með sama vatni og einhver annar er búin að nota....mmm jammí.
Ég og Helga erum að fara til Osló á morgun og verðum yfir helgina. Við förum með einum vini mínum (sami strákur og er búinn að fara með mig að veiða og til svíþjóðar til að smygla inn búsi) og við gistum hjá honum líka... þannig að þetta ætti ekki að verða svo dýrt fyrir okkur.
En ætli þetta sé ekki orðið nóg, það les þetta hvorteðer enginn.
Bless
»
07.05.2008 20:58:32 / hohe
En ég er samt ekki dauður. einsog vanalega er ekkert mikið að frétta. Fór með Jóhönnu (bílinn) á verkstæði um daginn svo að kallarnir gætu skipt um pústurrör svo ég gæti komið bílnum loksins í gegnum skoðun, þá tóku þeir eftir einhverju stykki (sem ég veit ekki hvað heitir og kalla það bara "járnstöng sem tengist í eitthvað annað járnstykki") og leyfðu mér ekki að fara á bílnum aftur, svo ég var bara bíllaus í viku...jibbí. Það var svo rosa húllumhæ á miðvikudaginn í síðustu viku...einhver veisla fyrir fólkið á síðasta ári í skólanum, og okkur útlendingunum var boðið að borða með...svo var skindilega bara öllum skólanum boðið að borða svo þetta var ekkert sérstakt. Það var einhver kall (örugglega veislustjórinn) alltaf að tala eitthvað, á norsku, skildi ekki mikið...var svosum ekki að hlusta kannski heldur, nema þegar hann sagði "SKÅL" sem gerðist á 5 mín. fresti sem var svosum ágætt. Svo eftir matinn var haldið á barinn til að djamma og hlusta á eina leiðinlegustu hljómsveit sem stigið hefur á svið. Það var drukkið mikið, ég var ofurölvi (ef ég verð einhverntíman ofurhetja ætla ég að heita það, OFURÖLVI) og ég var örugglega hættur að sjá því ég man voðalega lítið eftir restinni nema ég og Helga fórum inní herbergi hjá einum stráknum og horfðum á Ronju Ræningjadóttur á norsku...og ef mig minnir rétt þá var finnskur texti, man það samt ekki allveg. Við Helga sátum útá palli í dag að sóla okkur af því það er allveg greinilegt að við komum frá íslandi, því ég er svo ógeðslega hvítur að ef ég mundi fara allsber útí snjó þá mundi ég hverfa. Þegar við vorum búin að vera í smástund kom ein finsk stelpa og sólaði sig með okkur, en örugglega bara til að monta sig á að vera brún. En allavega, ég held ég hafi brunnið pínu þannig að ég er pínu rauður. Svo er ekkert meira að ske...nema kannzki á sunnudagskveldið, þá ætla ég að vera með partý afþví ég á afmæli á mánudaginn og Helga getur ekki drukkið þá og ég ætlaði mér að vera fullur og þið (þið fáu sem lesa þetta), ykkur er boðið í partýið og ég verð mjög sár ef enginn af ykkur kemur  og ef ykkur langar að gefa mér milljón eða eitthvað í ammælisgjöf...þá segiði það bara í kommentinu og ég gef upp uppæýsingar um bankavesenið P.S. mamma, ég verð 25 ára en ekki 24 ára en jæjja.....*rop* *klór í pung* bless
»
24.04.2008 23:50:33 / hohe
Jájá, það er kannzki svolítið síðan að ég kom síðast með færslu...en það bara gerist ekki það mikið hjá mér hérna....kannzki gerist hellingur en mér bara finnst það ekki svo merkilegt til að tala um. En já ég skal svosum skrifa það sem mér finnst kannzki vera hæfilega merkilegt fyrir ykkur fáa fólk sem lesa þetta. Helga kom með mér í vinnuna um daginn þar sem hún nennti ekki að hanga ein heima og hún var rosalega hjálpsöm, lá í sólbaði í dágóðan tíma...en svo kom hún loksins að hjálpa mér. Fór til Svíþjóðar í síðustu viku með 2 öðrum strákum til að kaupa áfengi og tóbak. Ég keypti mér nú bara einn kassa af bjór og fannst það svosum kannzki allveg nógu mikið smyggl þar sem maður má bara koma með eina kippu (af hálfslíter bjór) yfir til Noregs, en annar strákurinn tók 3 eða 4 kassa af bjór og hinn 2 kassa af bjór og 2 eða 3 eins lítra vodkaflöskur...svo þegar við vorum búnir í vínbúðinni fórum við í tóbaksverslunina, þar keyptu þeir sitthvor 40 dollur af munntóbaki en það má bara koma með 5 á mann yfir til Noregs. hehe þið hefðuð átt að sjá fésinn á þeim þegar við vorum að fara yfir landamærinn aftur til Noregs, þeir voru að skíta á sig. Við Helga fórum til Elverum um síðustu helgi (það er bær sem er svona klukkutíma akstur í burtu) til að skoða okkur um og til að gera eithvað, tókum myndavélina með en tókum engar myndir...eða jú annars við tókum myndir en það voru bara tvær myndir og það voru bara af einhverjum blámönnum að gera einhverjar apakúnstir einsog þeir gera best fyrir utan að ræna  Ekkert farið að veiða nýlega síðan ég dó næstum því á einhverju fjalli hér stutt frá þegar gaurinn lét mig labba allveg helling. Helga kom aftur með mér í vinnuna í dag, hún var nú ekki eins mikið í sólbaði núna einsog síðast. fór í norskupróf um daginn, held ég hafi náð því...náði allavega munnlega prófinu. Það er búið að vera sól alla vikuna og klikkað heitt þegar maður er ekki í skugga og ég er að spá í að fara að segja þetta gott í bili og fara út í sólbað...hmm, var að líta út um leið og ég skrifaði þetta...annaðhvort er sólmyrkvi eða þá að klukkan er virkilega kortér í 2 að nóttu til  Áður en ég hætti...Fer allt bara í FOKK ef ég fer úr landi? krónan bara lækkar niður úr öllu valdi og bensínið fer í akkurat hina áttina og ég missi af feitum, skítugum og skeggjuðum trukkalessum rífast í lögreglunni og sérstaklega lögreglumanninum sem öskrar "GAS"..er mikið að spá í að öskra "GAS" næst þegar ég þarf að reka við  en jæjja, köttur útí mýri eða eitthvað Bless
»
11.04.2008 14:53:33 / hohe
Já ég held það bara að það sé kominn tími á nýja færslu.
Það gersit samt kannzki ekki mikið hér hjá mér. Fór að veiða um daginn (Icefishing, borað gat í ísinn og dorgað) aftur...hefði örugglega sleppt því hefði ég vitað að ég þurfti að labba um 2 tíma uppá eitthvað fjall á gönguskíðunum mínum til að geta verið að veiða í kannzki 1 klukkutíma...boy oh boy var ég þreyttur þegar við komum upp. Tala nú ekki um daginn eftir, þá var ég aumur allstaðar. Fórum að vísu daginn eftir að grilla pylsur, þurftum að labba pínu til að komast inní einhvern skóg og grilla þær þar, en við þurftum nú ekki að labba eins mikið...en ég var samt þreyttur eftir daginn á undan. Við semsagt notuðum ekki grill til að grilla pylsurnar, bara kveiktur eldur og svo sett pylsurnar á greinar sem við tálguðum.
Ekkert heyrt frá kortaveseninu nema að þetta verður í síðastalagi komið á hreint um miðjan may. Ætla bara rétt að vona að þau sjái að ég hafi ekki verið að nota kortið mitt í svíþjóð..það er samt allveg týupískt ef þau halda að ég hafi notað það afþví ég fór til svíþjóðar um páskana og notaði það pínu þar þá.
Einsog ég sagði, þá er ekkert að gerast hér og svosum ekkert að skrifa um...þarf að fara að læra fyrir Norskuprófið sem er eftir viku og ég þarf að fara að hugsa um eitthvað að tala um í prófinu...við eigum semsagt að velja eitthvað til að tala um í einhverjar 5-6 mín.
jæjja bless bless
P.S. er ekkert að gerast í Húsó í Borgarnesi? Er skúli hættur? Er einhver hættur? Er einhver byrjaður? Skoð þið ekki síðuna mína lengur?
Bless
»
27.03.2008 20:33:50 / hohe
Ég held að það sé kominn tími á að skrifa eitthvað nýtt. Við Helga erum komin aftur frá Svíþjóð...reyndar komum við á Sunnudagskvöldið en ég er bara ekki búinn að nenna að gera neitt, hvað þá skrifa blogg. En það sem er búið að gerast frá síðustu færslu er nú ekki mikið... Keyptum bjór í Svíþjóð þar sem hann er ódýrari en hér í Norge og líka tóbak. Var nú svosum ekki að fylla bílinn af alkóhóli, því ég þorði ekki að taka áhættuna á að verða heimskur og kaupa helling og verða svo stoppaður...þannig að ég keypti bar 2 kassa af bjór og 3 karton af sígarettum...og það er heldur ekki einsog bjórinn sé ókeypis í Svíþjóð, heldur bara ódýrari en hér. Við vorum nú samt stoppuð við landamærin...ekki útaf við vorum að smygla heilum bílfarm af búzi og tóbakki neinei, af því Jóhanna gamla var ekki með miða á sér sem stendur 2008 heldur 2007... og þá vildi fólkið endilega fá að spjalla aðeins og vildu endilega fá að taka númeraplöturnar af henni, en þar sem ég var bara með hana í lána ákváðu þau að sleppa mér. Er að fara með hana í skoðun í fyrramálið, og vona að hún fái ekki endurskoðun. Við höfðum það fínt í Svíþjóð yfir páskana, slöppuðum af borðuðum góðan mat og ég held að Bjössi hafi verið að reyna að fela einhver sönnunargögn því hann hætti varla að hella í mig bjór. Takk fyrir okkur Bjössi, Lilja & Co. Ég vona að Emil sé heill eftir að hafa þolað mig inní sama herbergi, ég á það til að hrjóta (allavega segir Helga það, ég hef ekkert tekið eftir því), Ég man hvað ég var hræddur þegar ég svaf inní sama herbergi og Amma þegar hún hraut Virkar að segja nafnið mitt við Ölmu ef þið viljið að hún verði stillt? hehe En jæjja....ekkert meira búið að gerast síðan síðast (ekkert frekar en fyrri daginn) ÉG lofa að fara að koma með myndir bráðum....en ekki núna...er soldið lélegur við að nenna að taka myndir. hade
»
21.03.2008 08:50:35 / hohe
Jaeja gott folk...tha er madur komin til Bjössa fraenda i Sverige. Johanna (billinn minn) komst semsagt alla leid an thess ad bila nokkud eda slökkva ljosin. Vid villtumst semsagt ekkert a leidinni og tok thetta ferdalag ekki nema ca. 8 tima... Eg er i tölvunni hanns Bjössa og kann ekki ad skipta yfir a islenskt lyklabord a henni thannig ad thid verdid bara ad reyna ad skilja thetta...aettla samt ekki ad hafa thetta langt i thetta sinn, bara ad lata vita ad eg hafi (og Helga) hafi komist alla leid an thess ad lenda i Lapplandi.. Tölvan min mun fara til laeknis (Bjössa), og er eg ansi hraeddur um ad hann muni urskurda hana latna  En jaeja hef ekkert meira ad segja i bili, heyrumst sidar Holmgeir
»
15.03.2008 11:54:29 / hohe
Jæja, það er nú gaman að segja frá því að maður er loksins kominn á bíl. Við Helga fórum í gær til Osló að sækja kerruna. Þetta er 87 eða 88 módel af Mazda 323, 5 dyra. Hún heitir Jóhanna. Hún Jóhanna okkar var að reyna að hafa vit fyrir mér í gærkveldi þegar ég var að keyra frá Osló, Það var þoka og ég með háuljósinn á þannig að hún Jóhanna vinkona mín ákvað bara að slökkva allveg á ljósunum..ekki vera með neitt óþarfa bruðl á ljósunum...hefði nú samt kannzki allveg vilja hafa einhver ljós, en þau komu aftur eftir smástund og Jóhanna leyfði mér að hafa þau á í smástund í viðbót...eða þangað til henni fannst þetta verið komið nóg af ljósanotkun og slökkti á þeim aftur...þetta gekk svona þar til við komum heim...bara gaman  Hmmmm....veit ekki allveg hvort það sé eitthvað meira að frétta héðan úr Noregi... Það er komið páskafrí í skólanum og Helga er byrjuð að slappa af með því að þrífa íbúðina. En já bjössi minn ég kem til þín um páskana og þá máttu vera búinn að taka út lærið, Helga gæti orðið svolítið svöng eftir að mála húsið þitt.  Jæja, er að spá í að hætta í bili...komiði með slúður Har det bra
»
11.03.2008 10:47:09 / hohe
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á að láta vita af sér.. Þessi mynd hér að neðan er af rottu sem ég fann í gólfi á milli hæða í húsinu sem ég er að taka niður...sæt finnst ykkur ekki?
annars er nú ekki mikið að frétta af mér hér í Norge, nema ég fæ sennilega bíl á morgun eða hinn...jibbí. Bílarnir hér í Noregi eru ekkert smá dýrir, ég fann einn bíl á netinu allveg einsog minn og það var sett á hann um 900 þús. ég hefði átt að koma með minn og selja hann. Ég hefði sennilega þurft að orga einhvern aukakostnað og vesen en ég hefði samt grætt örugglega slatta þrátt fyrir það þar sem það munar ca. 500 þús. á því hvað ég get fengið fyrir hann hér og heima á Íslandi.
Það sem fer mest í pirrurnar á mér núna þessar mínútur, er að ég var að lesa visir.is og sá að John Fogerty er að koma til landsins (íslands) OG ÉG VERÐ EKKI KOMIN HEIM.. er að spá í að stofna bankareikning svo fólk geti lagt inn smávegis svo ég geti keypt flugmiða til að komast á tónleika
ég ætla að fara að gráta í ca. 2 tíma og fara svo í norskutíma í 4 tíma..
p.s. Adda..ert þú sú eina sem ert með internettengingu þarna af fólkinu í húsasmiðjunni, eða kann fólk ekki að skrifa í athugasemdum
Bless (snökt)

»
03.03.2008 13:33:48 / hohe
Hei, alle sammen!
Jæja...þá held ég að það sé komin tími á blogg.
Þeir sem skoða fossselsvefinn vita kannski hvað ég er að fara að skrifa um. En ég er að fara að tala um að tölvan mín sé komin loksins...hún kom semsagt á föstudaginn sl. en þegar ég ætlaði að fara að ræsa henni þá hreinlega neitaði hún því...hmmm...hún hafði fengið eitthvað högg á sig í flutningnum og greinilega ekki orðið sátt við það. Það var nú merkt BROTHÆTT/FRAGILE á pakkann, en maður má nú ekki búast við að þessir fokking tussu menn sem vinna hjá póstfyrirtækjum virði það. Ekki nóg með það að blessuð tölvan mín sé með eitthvað krabbamein, heldur var ég ekki voða sáttur þegar ég var að fara að borga reikninga í heimabankanum mínum í gær.. þá var einhver tölvusnillingur (held ég að hljóti að vera) búinn að finna kortanúmerið mitt á kreditkortinu mínu og búin að kaupa sér eithvað fínt fyrir um 360 þús. þetta voru 4 færslur og allar í sænskum krónum. Ég er búinn að tala við kortafyrirtækið og þeir eru búnir að loka kortinu og ætla að fara að rannsaka þetta mál og vona að ég þurfi ekki að borga þetta, þeir sögðu að þetta gæti tekið soldinn tíma.
En jæja...Ég er að fara að tala við konu um vinnu...það er semsagt vinnu við að rífa niður hús, jibbí eða þannig þar sem það má ekki bara rífa niður húsið, heldur þarf að halda mörgu heilu svi hún geti notað það aftur til að byggja annað hús.
En hvað er að frétta úr Húsó? einhver nýr? einhver hættur? komiði með slúðrið
Har Det
Hólmgeir
»
26.02.2008 11:31:15 / hohe
Jæja...Ég held að ég verði að skrifa eitthvað, ætlaði samt að bíða þar til tölvan mín kæmi. Ég set samt engar myndir inn fyrr hún kemur. Ég er ekki kominn með vinnu ennþá...er svoum ekki búinn að leita, kannzki smá frí frá vinnu í x langann tíma. Er samt sestur á skólabekk...bíddu Hólmgeir á skólabekk, það getur varla verið...ojú kallinn minn og það í Háskóla...en samt bara í norskutíma...en það er samt Háskóli (ægilega stoltur), Háskólinn í Heiðmörk eða Høgskolan i Hedmark. Fór með krökkum og kennurum úr skólanum uppí fjall sem er hér hjá okkur, þar var grafin hola þar sem kveikt var eld og fólk gat setið við hann og grilað sér pilsur...ein stelpan kom meira að segja með pönnu til að geta steikt sér beikon, og hún kláraði úr pakkanum þó hún sé nú ekki stór og feit heldur öfugt...Ég tók myndir úr þeirri ferð en ætla að bíða með að setja þær inn þangað til tölvan mín kemur. Svo fórum við fólkið úr norskubekknum heim til norskukennarans sem er svaka stór sveitabær, mótel, sláturhús með kjötborði þar sem hægt er að kaupa kjöt, safn og hægt er að fá veiðileyfi þarna held ég...svaka flottur staður og risa beljur og naut...tók myndir þar en var ekki með myndavélina svo ég þurfti að nota símann minn, og þar sem ég hef ekki snúru með mér til að færa myndir úr símanum mínum veit ég ekki hversu mikið ég tími að senda úr símanum í tölvupóstinn minn....en þetta er rosalega flott þarna. Svo fórum við Helga um helgina (hehe, Helga um helgina (aulahúmor)) ásamt 2 finnskum og einni svissneskri stelpum til bæ sem heitir Røros, þar var einhver risa markaður þar sem fólk var með allskonar heimasmíðað drazl og líka margt annað...þetta var dýr markaður svo ég keypti ekki neitt nema húfu úr kanínuskinni.
Ég get svo svarið það að þetta er dýrara land en ísland...tek sem dæmi: fór í búð sem á að vera svona einsog bónus heima og keypti t.d. 1 1/2 L af kók sem kostaði 16kr. og norsk króna er um 12,5...á meðan 2 L kók kostar um 120 kr. í Bónus heima minnir mig, svo held ég að bensínið sé nú ekkert ódýrara heldur. En jæja...er að fara í tíma eftir klukkutíma (hehe, tíma eftir klukkutíma(annar aulahúmor)) þannig ég ætla aðeins að lesa yfir fyrir hann. svo er fyllerí í kvöld...mér finnst svoldið skrítið að hafa fylleríin á þriðjudagskvöldum..það er bar hér í skólanum og það er aðeins seldur bjór á honum á þriðjudagskvöldum. pretty fucked up if you ask me
hættur núna, enda búinn að skrifa miklu meira en ég ætlaði... ég segji bara bless
Hólmgeir
»
20.02.2008 18:07:47 / hohe
Jæja..enn hefur ekki mikið gerst hjá mér, er ekki kominn með vinnu og er svosum ekki búinn að vera að leita, en það kemur bráðlega. Við Helga skeltum okkur á barinn í gærkveldi vegna þess að það er eini dagurinn sem er seldur bjór hérna á barnum...soldið skrítið að hafa það á þriðjudagskvöldi. Hitti strák á barnum sem bauð mér að koma með sér að veiða, ég þáði það boð og við fórum í morgun í þynnku og veseni uppí eitthvað fjall eða heiði. fórum svo á gönguskíðum á staðinn sem við fórum að veiða. Við vorum að veiða í gegnum ís...ég veiddi nú ekkert en hinir strákarnir veiddu flestir eithvað, en það voru nú bara hálfgerð síli held ég. Ég fattaði nú ekki að taka myndavél með í þessa ferð og síminn var að verða straumlaus svo ekki var hægt að taka myndir í þetta skiptið...svo sá ég Elg.
Ég held að það sé ekkert meira að frétta af mér svo bara.....bless bless
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 11879
|